Útvarpsstöð
1980

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Talstöð, Unimetrice SEA Hawk 25w VHF talstöð, framleiðsluland: Japan, tíðnisvið: 104 mHz (eftir breytingu). Efni: álundirstaða með hvítu plastloki. Hæð með kynningaspjaldi 140 cm. Gefandi: Sveinn R. Eyjólfsson fyrrverandi framkvæmdastjóri dagblaðsins DV, Vísis og Fréttablaðsins. Sigurður Harðarson rafeindavirki sá um að koma þessum búnaði í sýningarhæft ástand ásamt hljóðkerfi og setja upp í Skógasafni.
Sagan á bak við þessa Unimetrice SEA Hawk stöð:
Þessari bílatalstöð var breytt til að nota sem útvarpssendir á FM 103 til að senda út fréttir og tónlist „Fréttaútvarpsins“ sem dagblaðið DV setti á laggirnar í víðtæku 27 daga verkfalli ríkisstarfsmanna sem hófst 4. október 1984. RUV hætti að senda út dagskrá og engin dagblöð komu út á sama tíma vegna verkfalls bókagerðamanna sem einnig voru í BSRB. Landið var því án útvarps og dagblaða um tíma. Ríkið var með einkarétt á útvarpssendingum.
Áhugasamir ofurhugar smíðuðu FM senda til að senda út fréttir og tónlist. Hjá flestum þeirra var sent út stuttan tíma í einu. Það var ekki fyrr en Frjáls fjölmiðlun hf. útgáfufyrirtæki dagblaðsins DV fékk til liðs við sig fagmenn á þessu sviði. Smyglað var til landsins FM sendi frá Noregi sem síðar var hertekinn af eftirliti ríkisins og er ekki til í dag. Einnig fengu þeir þennan heimasmíðaða sendi til vara til að hafa í bíl. Útvarpssendingar voru fyrstu dagana í bíl sem var á ferðinni og staðsettur á ýmsum stöðum í Reykjavík. Fjarskiptaeftirlitið náði því ekki að stoppa þessa útvarpsstarfsemi. Það var ekki fyrr en DV útbjó aðstöðu í húsnæði sínu við Síðumúla að eftirlitið náði að miða út og stoppa útsendingar Fréttaútvarpsins með því að fjarlægja allan búnaðinn.
í Skógasafni má heyra síðustu sex mínútur Fréttaútvarpsins áður en starfsmenn fjarskiptaeftirlitsins náðu að stoppa útsendingu. Ellert B. Schram þáverandi ritstjóra DV tilkynnir lokun stöðvarinnar og hvers vegna.
Um kvöldið sama dag var stofnað félag um frjálsar útvarpsstöðvar, “Íslenska Útvarpsfélagið“.
Nærri tveim árum síðar, eða 1. janúar 1986 var samþykkt frumvarp á Alþingi um frjálst útvarp. Það má því segja að starfsmenn DV á þessum árum hafi rutt brautina fyrir frjálsri útvarpsstarfsemi á Íslandi. Útvarpsstöðin Bylgjan hóf útsendingar 28. ágúst 1986 og var fyrsta löglega einkarekna útvarpstöðin á Íslandi. Fyrstu starfsmenn Bylgjunnar var blandaður hópur reyndra starfsmanna frá RUV ásamt nýútskrifuðu fólki með menntun á sviði fjölmiðlunar. Bylgjan hefur síðan verið öflugur keppinautur RÚV.
Í sama sýningarkassa er stöð frá unglingum í Hafnafirði frá sama tíma. Frásögn annars þeirra er á fylgiskjali 1.
Samantekt heimildar: Sigurður Harðarson rafeindavirki
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sveinn Reynir Eyjólfsson
Titill
Sérheiti: Útvarpsstöð
Ártal
1980
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SHR-32
Stærð
45 x 80 x 45 cm
2.4 kg
Lengd: 45 Breidd: 80 Hæð: 45 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Samgöngusafnið
Undirskrá: Fjarskiptasafn Sigurðar Harðarsonar
Efnisorð / Heiti













