CB Lafayette Micro 66
1970

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Talstöð Lafayette, framleiðsluland: USA, gerð: Micro-66 CB talstöð. Tíðnisvið: 27 mHz, stærð B 11 - H 5 – D16 sm. Efni: Álundirstaða með svörtum lokum.
Algengasta CB talstöðin hér á landi af öllum tegundum. Talstöðin er 6 rása kristalstýrð stöð. Micro-66 hafði það fram yfir margar aðrar tegundir að tvö hátalaraúttök eru á bakhliðinni. Annað fyrir aukahátalara, en hitt fyrir sérstakan hátalara sem virkaði þannig að ef ýtt var á hnapp framan á stöðinni var hægt að nota hana sem kallkerfi. Þegar þrýst var á sendihnappinn á hljóðnemanum sendi stöðin ekki út, heldur eingöngu í þann hátalara.
CB talstöðvar nutu mikilla vinsælda upp úr 1970 hjá almenningi. Félög voru stofnuð. Eitt þeirra hét Farstöðvaklúbbur Reykjavíkur og varð öflugast allra með rúmlega 7.000 félagsmenn þegar mest var árið 1981. Nafnið breyttist síðar í FR, Félag farstöðvaeigenda á Íslandi. Samskipti milli manna á spjallrásum CB talstöðvanna voru svipuð og gerist á “Facebook” nú til dags. Þar eignuðust menn vini " í loftinu " eins og sagt var. Dæmi eru um hjónabönd sem urðu afleiðing af þeim samskiptum. Tíðnisvið: 27 mHz. Stöðin er 12 v og sendiafl 4 w. Radiovirkinn Skólavörðustíg seldi þessar stöðvar. Samantekt heimildar: Sigurður Harðarson rafeindavirki.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: CB Lafayette Micro 66
Ártal
1970
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SHR-14
Stærð
16 x 11 x 5 cm
2.3 g
Lengd: 16 Breidd: 11 Hæð: 5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Samgöngusafnið
Undirskrá: Fjarskiptasafn Sigurðar Harðarsonar
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Talstöð





