Karbítlampi

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Karbítlampi, samskonar og námumenn nota. Er frá strandi í Meðallandi. Gefið af Árna Jónssyni í Heiðarseli á Síðu.
Lampinn er merktur „Hailwoods & Ackroyd Ltd. / Makers / Hailwoods Improved Lamp Type 01A / Morley Leeds England.“
Hailwoods & Ackroyd framleiddu gler, lampa o.fl. í Leeds á Englandi frá 1927 til 1957, þ.m.t. öryggislampa fyrir námur. Í Bretlandi hófst mikil kolavinnsla með iðnbyltingunni og vegna mikillar eldhættu af völdum náttúrulegs gass í námum var nauðsynlegt að finna upp öryggislampa í stað þess að menn bæru opinn eld í námunum. Það var Humphry Davy sem hannaði fyrsta öryggislampann árið 1815. Seinna var hönnunin bætt þannig að hægt var að nota lampana til að mæla gasmagn.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Árni Jónsson
Safnnúmer
Safnnúmer A: S-1057
Staður
Staður: Heiðarsel 1, 880-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur, Síða, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Karbítlampi
Heimildir
Safnskrá Skógasafns. Þ.T.
Upprunastaður
63°47'32.7"N 18°11'6.2"W





