Handavinnupoki

1968 - 1969
Handavinnupokinn var unninn í Handavinnudeild Kennaraskóla Íslands 1968-1969. Pokinn er allur handsaumaður. Hann er skreyttur útsaumslínum meðfram hvorri hlið. Útsaumsspor: Klóspor og augnsaumur. Að framan er fangamarkið KÞ og að aftan er ártalið 1967 saumað með krosssaumi. Pokinn er dreginn saman að ofan með snúinni snúru. Stærð: 38.5 x 30 sm. Pokinn er sýnishorn af skylduvinnu í handavinnu í 9 ára bekk samkvæmt námskrá frá 1960. Eitt af viðfangsefnum handavinnukennaranámsins var að vinna helstu skyldustykki grunnskólans. Kennari í útsaumi: Soffía Þórarinsdóttir, F. 2. nóv.1922. D. 30. júlí 2006. Soffía kenndi við handavinnudeildina frá 1966 – 1990. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1968 - 1969
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-30-6
Stærð
38 x 30 cm Lengd: 38 Breidd: 30 cm
Staður
Staður: Kennaraskólinn, Stakkahlíð 1, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handavinnupoki

Upprunastaður

64°8'12.8"N 21°54'11.1"W