Barmmerki

1958
Barmmerki, Sjálfsbjörg (landssamband hreyfihamlaðra). Barmmerkið er úr grænu plasti með upphleyptu merki Sjálfsbjargar í hvítum lit, fyrir neðan merkið stendur: Sjálfsbjörg. Á bakhliðina er festur málmprjónn til að næla merkið í fatnað. Upplýsingar frá gefanda: Þetta er væntanlega merkið sem Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík, lét útbúa fljótlega eftir stofnun þess þann 27.6.1958. Barmmerkin voru seld til fjáröflunar fyrir félagssjóð og húsbyggingarsjóð. Þessi merki voru til í ýmsum litum auk hins græna, s.s. brúnum, rauðum, bláum, bleikum og appelsínugulum. Þá var til silfurmerki og merki smíðað úr látúni og gráhúðað.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1958
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2021-76-4
Stærð
4 x 1.4 cm Lengd: 4 Breidd: 1.4 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Barmmerki