Doktorshúsið

1885 - 1942
Málverk eftir Jón Helgason: Doktorshúsið. Olíulitir á pappa, límdur á tré. Stærð: 17,5 x 33,5 sm. Stærð með ramma: 20 x 36,5 sm. Myndefni:  Til vinstri er Doktorshúsið, Ránargata 13. Það var reist af Jóni Thorstensen landlækni 1834, og var fyrsta húsið sem reis á Hlíðarhúsavelli. Húsin til hægri eru efst í Grjótaþorpinu, en grjótgarðurinn mun vera sá sem Garðastræti fékk nafn af.  Ferill, saga:  Reykjavíkurborg eignaðist rúmlega hundrað Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar árið 1945. Myndasafnið má telja upphafið að minjasafni Reykjavíkur og eru ómetanlegar heimildir um sögu borgarinnar.  Æviágrip: Jón Helgason biskup var fæddur 21. júní 1866 að Görðum á Álftanesi. Tveggja ára gamall fluttist hann til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum, þeim Helga Hálfdánarsyni prestaskólakennara og Þórhildi Tómasdóttur.  Að loknu stúdentsprófi 1866 sigldi hann til Kaupmannahafnar til guðfræðináms.  Meðfram náminu fylgdi hann ráðleggingum föður síns og kynnti sér fagrar bókmenntir.  Jafnframt segir Jón í ævisögu sinni: "En svo var annað, sem ég var sérstaklega hneigður fyrir og hafði verið það frá æsku, sem ég nú varði mörgum tómstundum til að iðka, en það var dráttlist.  Mjög snemma Hafnarveru minnar hafði ég tekið að venja komur mínar á myndasöfn borgarinnar ...  Þetta varð aftur til þess, að hjá mér vaknaði löngun til þess að fá tilsögn í dráttlist hjá góðum kennara og þar kom, að ég keypti mér tilsögn hjá norskum málara ... Louis Moe að nafni. ...  Er mér óhætt að segja, að ég hefi aldrei iðrast þeirrar tafar frá lestrinum, sem af þessu leiddi, því að þótt mig aldrei hafi dreymt neina listamannsdrauma, þá hefir þetta dráttlistar-sýsl mitt búið mér fjölda ánægjustunda á ævinni, þótt aldrei yrði úr því annað en hjáverka-sýsl viðvanings.’’ Árin líða, Jón lýkur námi og flytur til Íslands.  Gerðist hann fyrst kennari í prestaskólanum en var síðan kosinn biskup árið 1917. Meðfram störfum sínum gaf hann sér iðulega tíma til að teikna og mála.  Hann dregur upp nákvæmar myndir af Reykjavík og kirkjum landsins.  Lítið hefur verið skrifað um myndir Jóns Helgasonar og kannski hefur fólk hneigst til að líta á þær sem sagnfræðilegar heimildir fyrst og fremst. Jón Helgason lést í Reykjavík árið 1942 eftir langt og farsælt ævistarf. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Doktorshúsið
Ártal
1885 - 1942
Safnnúmer
Safnnúmer A: ÁBS-2847
Stærð
20 x 36.5 cm Lengd: 20 Breidd: 36.5 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Kjörgripir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Olíumálverk
Myndefni:
Höfn
Myndefni:
Kaupstaður
Myndefni:
Skip
Heimildir
Jón Helgason. Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar. 1, Gamli miðbærinn. Guðjón Friðriksson tók saman. Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990. María Karen Sigurðardóttir. Sýningarskrá. (Ljósrit). Sýning Lækjargötu. Árbæjarsafn 1998. Margrét Hallgrímsdóttir. „Kveðja frá Árbæjarsafni.“ Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar. 1, Gamli miðbærinn. Guðjón Friðriksson tók saman.  Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990. Mappa; ÁBS 2807-ÁBS 2855. Jón Helgason. Mappa; Myndir. Skjalasafn Árbæjarsafns um Jón Helgason.