Reykjavíkurfjara 1866
1885 - 1942

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Málverk eftir Jón Helgason: Reykjavíkurfjara og Hafnarstræti 1865/1866. Olíulitir á pappa í gyltum viðarramma.
Stærð: 23 x 35,5 sm. Stærð með ramma: 42,7 x 30 x 3 sm.
Myndefni: Við höfnina um 1866. Þrjár kaupmannabryggjur eru mest áberandi í flæðarmálinu. Næst er Smithsbryggja, þá Knudtzonsbryggja og loks Fishersbryggja. Stóra húsið lengst til vinstri er Barnaskólinn, áður Flensborgarhús (Pósthússtræti 3), þar næst koma tvö hús sem tilheyra verslun Knudtzons kaupmanns (Hafnarstræti 10-12) sem um þessar mundir var voldugasti kaupmaðurinn í Reykjavík. Því næst er lítið timburhús Robbs kaupmanns (Hafnarstræti 8), þá hús Jónasar Guðmundssonar (Hafnarstræti 6) og síðan sér í annars vegar ljósbrúnan og hins vegar svartan gafl á tveimur allmiklum húsum Hannesar Johnsons kaupmanns (Hafnarstræti 4 og Veltusund 1). Vestasta húsið við suðurhlið Hafnarstrætis er pakkhús frá Havsteen kaupmanni, en hann átti einnig húsin norðan við götuna beint á móti (Hafnarstræti 1-3)Þar næst er allstórt hús við ströndina, svokallað Bryggjuhús (Vesturgata 2) í eigu Fischers kaupmanns. Stóra hvíta húsið er Glasgow (Vesturgata 5a), sem skoskir kaupmenn reistu árið 1863, en lengst til hægri er Sjóbúð (Vesturgata 7), íbúðarhús Geirs Zoëga útgerðarmanns. Hólavallamyllan gnæfi yfir bænum til vinstri en uppi á hæðinni er Landakot sem þá var komið í eigu Kaþólska trúboðsins.
Aðrar upplýsingar: Reykjavíkurborg eignaðist rúmlega hundrað Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar árið 1945. Myndasafnið má telja upphafið að minjasafni Reykjavíkur og eru ómetanlegar heimildir um sögu borgarinnar.
Æviágrip: Jón Helgason biskup var fæddur 21. júní 1866 að Görðum á Álftanesi. Tveggja ára gamall fluttist hann til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum, þeim Helga Hálfdánarsyni prestaskólakennara og Þórhildi Tómasdóttur. Að loknu stúdentsprófi 1866 sigldi hann til Kaupmannahafnar til guðfræðináms. Meðfram náminu fylgdi hann ráðleggingum föður síns og kynnti sér fagrar bókmenntir. Jafnframt segir Jón í ævisögu sinni: "En svo var annað, sem ég var sérstaklega hneigður fyrir og hafði verið það frá æsku, sem ég nú varði mörgum tómstundum til að iðka, en það var dráttlist. Mjög snemma Hafnarveru minnar hafði ég tekið að venja komur mínar á myndasöfn borgarinnar ... Þetta varð aftur til þess, að hjá mér vaknaði löngun til þess að fá tilsögn í dráttlist hjá góðum kennara og þar kom, að ég keypti mér tilsögn hjá norskum málara ... Louis Moe að nafni. ... Er mér óhætt að segja, að ég hefi aldrei iðrast þeirrar tafar frá lestrinum, sem af þessu leiddi, því að þótt mig aldrei hafi dreymt neina listamannsdrauma, þá hefir þetta dráttlistar-sýsl mitt búið mér fjölda ánægjustunda á ævinni, þótt aldrei yrði úr því annað en hjáverka-sýsl viðvanings.’’ Árin líða, Jón lýkur námi og flytur til Íslands. Gerðist hann fyrst kennari í prestaskólanum en var síðan kosinn biskup árið 1917. Meðfram störfum sínum gaf hann sér iðulega tíma til að teikna og mála. Hann dregur upp nákvæmar myndir af Reykjavík og kirkjum landsins. Lítið hefur verið skrifað um myndir Jóns Helgasonar og kannski hefur fólk hneigst til að líta á þær sem sagnfræðilegar heimildir fyrst og fremst. Jón Helgason lést í Reykjavík árið 1942 eftir langt og farsælt ævistarf.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Reykjavíkurfjara 1866
Ártal
1885 - 1942
Safnnúmer
Safnnúmer A: ÁBS-2833
Stærð
42.7 x 30 x 3 cm
Lengd: 42.7 Breidd: 30 Hæð: 3 cm
Staður
Staður: Reykjavíkurhöfn, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Kjörgripir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Olíumálverk
Myndefni: Kaupstaður
Myndefni: Bryggja
Myndefni: Fjara
Myndefni: Hús, + hlutv.
Myndefni: Kaupstaður
Myndefni: Bryggja
Myndefni: Fjara
Myndefni: Hús, + hlutv.
Heimildir
Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar. 1, Gamli miðbærinn. Guðjón Friðriksson tók saman. Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990.
Mappa; ÁBS 2807-ÁBS 2855. Jón Helgason.
Margrét Hallgrímsdóttir. „Kveðja frá Árbæjarsafni.“ Reykjavíkurmyndir Jóns Helgasonar. 1, Gamli miðbærinn. Guðjón Friðriksson tók saman. Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990.Reykjavík 1990.. Árbæjarsafn, Íslandsmyndir. Reykjavík 1990.
Mappa; Myndir.
María Karen Sigurðardóttir. Sýningarskrá. (Ljósrit). Sýning Lækjargötu. Árbæjarsafn 1998.
Skjalasafn Árbæjarsafns um Jón Helgason.
Upprunastaður
64°9'9.6"N 21°56'22.4"W



