Söðuláklæði

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Glitofið söðuláklæði, grunnur svartur, glit í gulum, lilla, fjólubláum, grænum, ljósgrænum, ljósum, rauðum, gulum og appelsínugulum litum. Vasar með löngum blómagreinum á hvorum helming, munsturbekkur í hliðum. Grænn borði við brún efst og neðst, handsaumaður við áklæðið. Merkt: SGGD.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Þorbjörg Sigurðardóttir Bergmann
Safnnúmer
Safnnúmer A: ÁBS-420
Stærð
138 x 99 cm
Lengd: 138 Breidd: 99 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Sýningartexti
Lýsing frá 1982.
Glitofið, tvær voðir saumaðar saman í miðju eftir endilöngu. Svartur grunnur, blómaker, stofn, blóm í miðju, blóm sitt hvoru megin við stofn, áttablaðarósir, mynstur á báðum endum áþekk, litir í mynstri, rauðir, og grænir litir. Bekkur á langhliðum, greinar í bugðum m. blómum. Mjög slitið í miðju, hefur verið tekið úr teppinu þar, saumur þvert, grænn kantur saumaður á enda.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Kjörgripir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Söðuláklæði
Heimildir
Þorbjörg Bergmann, grein e. Rannveigu Tryggvadóttur (skjalasafn ÁBS).
Söguspegill, afmælisrit Árbæjarsafns 1992. Grein e. Hrefnu Róbertsd. um Rvkfél.



