Saumavél

Varðveitt hjá
Minjasafnið á Akureyri
Fótstigin Husquarna
(Freja) saumavél í borði úr spónlögðu maghoni. Ofan í borðið er þrykkt
framleiðslunúmer 1532. Vélin sjálf hefur númerið 476976. Vélin sjálf
fellur ofan í plötu sem er 95 x 47 sm, auk vængja til beggja enda
48 x 47 sm. Vængirnir falla síðan
saman ofan á plötunni. Vélin er mjög skrautleg með marglitum og gylltum
rósum. Undir plötunni eru fjórar skúffur, tvær hvoru megin undir tvinnakefli
og annað tilheyrandi saumaskap. Messinghöld eru á skúffum, eitt þeirra
vantar. Undir vélinni eru fætur úr pottjárni, lakkað svart, auk pedala
og svinghjóls en sveif á milli pedala og svinghjóls er úr tré. Gangfær.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Hólmfríður Gunnarsdóttir
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 4815
Safnnúmer B: 1979-4815
Stærð
95 x 47 x 77 cm
Lengd: 95 Breidd: 47 Hæð: 77 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Saumavél



