Inniskór

Kennslugagn. Heklaðir inniskór úr tvöföldu íslensku ullargarni. Skórnir líkjast gömlu skinnskónum en þessir byggja á hringlaga formi og eru saumaðir saman ofan á ristinni. Lítil hringlaga dúlla er fest við hælinn með fastahekli og myndar þannig hælstykkið. Undir skónum er leður sem er saumað niður með varpspori. Skórnir voru mikið notaðir og þóttu hlýir og góðir. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-24-347
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Inniskór
Efnisorð:
Skólahandavinna