Batikprufa

Batikprufa. Unnin með bývax í flauelsefni. Stærð: 40 x 93 sm. Hólmfríður kenndi valnámskeið Frjálst val handlista / Óbundinn kjarni í almenna kennaranáminu við Kennaraháskóla Íslands þar sem tekin voru fyrir fjölbreytt verkefni. Hólmfríður: “Frjálst val handlista hafði 4 st. vikulega eitt eða tvö skólaár af fjórum og fengu kennarar (konur) víkjandi rétt til hannyrðakennslu tækju þeir mestan hluta kvótans er lauk með prófi. Þessi kvóti var ágætlega rúmur og var hann gjörnýttur við tilraunir til sveigjanlegra vinnuhátta þar sem allir lögðu sitt af mörkum við listrænar útfærslur unnar úr nánasta umhverfi eða eigin hugmyndafræði – allt samtengt þeirri uppeldisfræði sem þá var í grunnnámi KÍ.” (Úr bréfi sem er varðveitt á Þjóðskjalasafni. Merkt Handlistir. 12.jan.1985.). Víkjandi réttur kennara merkir að kennarar sem tóku þessi valnámskeið gátu kennt hannyrðir í þeim skólum þar sem ekki fékkst hannyrðakennari með full réttindi. Átti það aðallega við um minni skóla á landsbyggðinni. (Samantekt Vigdísar Pálsdóttur. Menntun handavinnukennara á Íslandi. Útg.1985). Eitt af verkefnum námskeiðsins var vaxbatik í flauel og önnur vefjarefni. Verkefnið er eitt af mörgum tilraunaverkefnum sem HÁ vann til að sýna nemendum ýmsa möguleika sem batik bauð uppá, bæði hvað varðar tækni og efnisval. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni úr hinum ýmsu efnisgerðum, t.d. dúka, púða og fleira. Einnig komu nemendur með föt að heiman til að lita og framlengdu þannig líftíma þeirra. Þess ber að geta að handlituð föt voru mikið í tísku á þessum árum. Námskeiðin byrjuðu veturinn 1969-1970. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-24-307
Stærð
40 x 93 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Batikprufa
Efnisorð:
Skólahandavinna
Efnisorð:
Textíll

Upprunastaður

64°8'12.8"N 21°54'11.1"W