Tvíbökuvél

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Handvirk deigskurðarvél. Á að standa á borði. Í vélina vantar handfang sem fært er upp og niður þegar fletja út og skera þarf deigið í marga jafnstóra hluta. Hún er hvítmáluð en mjög slitin og ryð farið að sjást. Var í notkun í Brauð- og Kökugerðarhúsi Ágústs Jónssonar og Alfred Nielsen, Njálsgötu 65. Fyrirtækið var stofnað 1931 en lagt niður 1979 þegar Alfreð Nielsen hætti störfum vegna aldurs, þá 73 ára. Gefandi Steinunn Nielsen.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1994-113-37
Stærð
45 x 35 x 70 cm
Lengd: 45 Breidd: 35 Hæð: 70 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Sigríður og Margrét Níelsen, viðtal. Aldarminning brauðgerðariðnaðar á Íslandi 1834-1934.
