Kápa, fatnaður

1950 - 1970
Dökkblá kvenmannskápa frá merkinu St Michael í stærð 14. Kápan er úr bómullarblöndu, 67% pólýester og 33% bómull. Efnið í kápunni er sagt regnhelt. Kápan er fóðruð að innan með hvítu fóðri, hneppt að framan með stórum, bláum tölum úr plasti. Kápan kemur frá Leikfélagi Siglufjarðar. Hvítar málningarslettur eru á nokkrum stöðum á kápunni.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1950 - 1970
Safnnúmer
Safnnúmer A: 950728-3
Stærð
65 x 107 cm Lengd: 65 Breidd: 107 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kápa, fatnaður