Hárklippur

1910 - 1970
Hárklippur í upprunalegum umbúðum. Þrennar klippur, mismunandi að stærð, einar aukatennur á klippur og einn gormur í pappakassa. Klippurnar eru af gerðinni Zwilling. Klippurnar voru í eigu Margrétar Friðriksdóttur (f. 1910) frá Efri-Hólum í Núpasveit. Hún giftist Þórhalli Björnssyni og bjuggu þau á Kópaskeri þar sem líklegt er að Margrét hafi mundað klippurnar. Síðar fluttust þau til Reykjavíkur. Að sögn klippti hún marga karlmenn með þessum klippum. 

Aðrar upplýsingar

Ártal
1910 - 1970
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-27
Stærð
15.4 x 9.5 x 3 cm 527 g Lengd: 15.4 Breidd: 9.5 Hæð: 3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn N-Þingeyinga
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hárklippur