Sætaskipan
= 2020, Sigurður Atli Sigurðsson

Varðveitt hjá
Listasafn Íslands
Verkið sýnir hinar ýmsu útfærslur af uppröðun stóla í rými. Rýmið er óskilgreint en maður sér fyrir sér kennslustofu, fyrirlestrarsal, árshátíð, teserimóníu, húsfélagsfund. Verkið vísar í sögustundina við varðeldinn og kvöldvökuna á baðstofunni, en einnig í valdastrúktúra og samfélagsskipulög. Það er einungis einn fasti í verkinu, en það er sögumaðurinn / fyrirlesarinn / kennarinn.
Aðrar upplýsingar
Titill
Verkheiti: Sætaskipan
Enskt verkheiti: Seating Configuration
Ártal
= 2020
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-11501
Stærð
100 x 70 x 0 cm
Sýningartexti
Í verkum sínum býður Sigurður Atli Sigurðsson iðulega upp á samtal við áhorfandann þar sem kunnugleg form og litir eru sett fram á einfaldan hátt en hafa einnig vísanir út fyrir verkið. Á bak við myndröðina Sætaskipan er löngun Sigurðar Atla til að gera verk sem eru bæði óhlutbundin og vísa beint í eitthvað áþreifanlegt. Auk þess sækist hann eftir sérlega óáhugaverðum og hversdagslegum efnivið. Með slíkum efnistökum telur hann mögulegt að draga fram innbyggða töfra.
Verkin 39 í myndröðinni Sætaskipan sýna ýmsar útfærslur af uppröðun stóla í rými. Rýmið er óskilgreint en maður sér til dæmis fyrir sér kennslustofu, fyrirlestrasal, árshátíð eða húsfélagsfund. Verkin vísa þannig í margs konar samkomur og sögustundir en leiða einnig hugann að valdastrúktúr og samfélagsskipulagi. Uppröðunin er fjölbreytt en oftar en ekki er það aðeins einn sem sker sig úr fjöldanum: sögumaðurinn, fyrirlesarinn, kennarinn. Verkin eiga meðal annars rætur að rekja til kennslu listamannsins og reynslu hans af akademísku umhverfi í mismunandi löndum en þau vísa einnig í þróun heimsmála þar sem ólík valdakerfi takast á.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Útgáfa / Sería
1 / 1
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Myndstef
Höfundarréttur: Sigurður Atli Sigurðsson
