Hvernig á að sauma á saumavél?
1982 - 1983

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Útgefið efni og vinnuprufur
Bæði verkefnin, a) og b) voru unnin í Framhaldsdeild handmennta við KHÍ árið 1982-1983. Umsjónarmaður námsins var Fríður Ólafsdóttir, dósent við KHÍ.
a)
Titill: Bók. Hvernig á að sauma á saumavél.
Efni: Pappír.
Tækni: Útgefið efni.
Bók eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur, Svanhildi Valsdóttur og Þórleifu Drífu Jónsdóttur.
Bókin Hvernig á að sauma á saumavél. Leiðbeiningar fyrir byrjendur í vélsaumi. Námsgagnastofnun 1985. Höfundar unnu efnið í bókina þegar þær stunduðu nám við Framhaldsdeildina. Bókin var endurskoðuð áður en hún var gefin út og endurútgefin að minnsta kosti tvisvar.
Í inngangi segir m.a. Markmið þessarar bókar er að gera nemendur sjálfbjarga í vélsaumi. Hér er einnig fjallað lítillega um efnisfræði, lita- og formfræði og munsturgerð. Kennurum er heimilt að ljósrita að vild upp úr bókinni. Bókin er í A4 broti.
Bókin kom að góðu gagni í grunnskólum og var mikið notuð. Það hefði verið æskilegt ef nemendur hefðu fengið eigið eintak af bókinni því í henni er fjöldi vinnubókaverkefna og ýmis fróðleikur sem hefði komið að gagni.
b)
Titill: Tilraunaprufur í vélsaumi.
Efni: Textílefni.
Tækni: Vélsaumur.
Fjórar vinnuprufur í vélsaumi eftir Þórleifu Drífu Jónsdóttur. Prufurnar vann hún í Framhaldsdeild KHÍ á námskeiði hjá finnska kennaranum Maja Leena Seppålå sem var gestakennari við deildina. Makmiðið með námskeiðinu var m.a. að vinna með saumavélina á skapandi hátt og unnu nemendur fjölbreyttar tilraunir í saumavél. Vinnuprufurnar eru eitt af verkefnum bókarinnar og voru í raun kveikjan að útgáfu hennar.
Boðið var uppá framhaldsnám í handlistum við Kennaraháskóla Íslands skólaárið 1982-1983. Umsjónarmaður námsins var Fríður Ólafsdóttir, dósent.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Notandi
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Hvernig á að sauma á saumavél?
Ártal
1982 - 1983
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-21
Staður
Staður: Kennaraháskóli Íslands, Stakkahlíð, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bók, skráð e. hlutv./innih.
Efnisorð: Prufa, handavinnusýnishorn
Efnisorð: Skólahandavinna
Efnisorð: Prufa, handavinnusýnishorn
Efnisorð: Skólahandavinna
