Håndarbejde i skolen
1982 - 1994

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Danskt fagtímarit um textílkennslu í grunnskólum. Håndarbejde i skolen. Í tímaritinu eru greinar um textílkennslu, kynning á textíllist, viðtöl við fagfólk og listamenn, verkefnahugmyndir og uppskriftir ásamt ýmsum fróðleik um textíl og annað handverk. Þar eru einnig kynnt námskeið sem í boði voru fyrir textílkennara.
Sex eintök af tímaritinu
a) 17. árgangur, maí. 1982. Nr.4
b) 27. árgangur, nóv. 1992. Nr.4
c) 28. árgangur, nóv. 1993. Nr.4
d) 29. árgangur, febr. 1994. Nr.1
e) 29. árgangur, maí 1994. Nr.2
f) 29. árgangur, nóv. 1994. Nr.4
Nafni blaðsins hefur tvisvar verið breytt frá því það kom fyrst út árið 1965.
Håndarbejde i skolen frá 1965 – 2011.
Håndarbejde Nu frá 2011 – 2015.
Håndværk & Design frá 2015. Það ár voru félögin tvö, Danmarks Håndarbejdslærerforening og Danmarks Slöjdlærerforening sameinuð í eitt félag, Håndværk og Design, og nafni tímaritsins var breytt í Håndværk & Design.
Félag textílkennara fær blaðið en það er ekki vitað hvort skólar eru áskrifendur í dag
(okt. 2017).
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Notandi
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Håndarbejde i skolen
Ártal
1982 - 1994
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-16
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
