Prufumappa
1963 - 1964

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Nemendavinna úr Mýrarhúsaskóla veturinn 1963 – 1964.
Prufumappa. Skylduvinna í 12 ára bekk samkvæmt námskrá 1960. Mappan er úr pappír með útsaumaðri kápu úr bómullarjafa. Á framhlið kápunnar er fangamarkið ÞJ og ártalið 1963 og undir því er bogadreginn munsturbekkur. Á bakhlið er stórt fuglamunstur (hæna með tvo unga) með hringlaga ramma utan um. Allt saumað með krosssaumi. Ídregið krókspor saumað í kringum kápuna. Faldurinn í kring er saumaður niður með skáspori og myndar þannig örmjóa skrautlínu.
Skráð í sömu röð og er í möppunni
Titilsíða merkt með handskrifuðum texta höfundar.
Þórleif Drífa Jónsdóttir. Mýrarhúsaskóla. Veturinn 1963-64. Vinnubók í handavinnu. Kennari: Þuríður Helgadóttir.
Einskeftustopp. Fangamarkið ÞJ og ártalið 1963 saumað með krosssaumi. Tvær línur með demantspori saumaðar til hliðanna. Utan um prufuna eru saumaðar tvær gerðir af tunguspori (kappmelluspor), einfalt tunguspor og mislöng tunguspor.
Prjónastopp. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Viðgerð á prjónlesi. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Hnappagataprufa. Tvö handgerð hnappagöt (lárétt).
Krosssaumur. Þrír munsturbekkir. Mjór krosssaumsbekkur saumaður í kringum prufuna. Efnið rakið upp að saumnum til að mynda kögur.
Slétt og brugðið. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Kaðlaprjón. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Kaflaprjón. Stundum nefnt þvottapokaprjón, eftir þvottapokanum sem var skylduvinna í 10 ára bekk samkvæmt námskrá 1960. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Einfalt perluprjón. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Tvöfalt perluprjón. Heklaðir takkar utan um prufuna.
Rússneskt hekl.
Skriflegar leiðbeiningar (vélritaðar). Háleistar með oddahæl, frönskum hæl og stjörnuúrtöku. Skylduvinna í I.bekk gagnfræðastigsins.
Lykkjuupptaka á hælnum (framhald).
Stjörnuúrtaka á leistinum (framhald).
Drífa vann fleiri prufur en hún þurfti, eða aukastykki eins og það var nefnt. Hún hafði strax mikinn áhuga á handavinnu. Allar prufurnar voru unnar í 12 ára bekk þó sumar þeirra hafi verið skylduvinna í gagnfræðadeild.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Notandi
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Þórleif Drífa Jónsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Prufumappa
Ártal
1963 - 1964
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-9
Staður
Staður: Mýrarhúsaskóli, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prufumappa
Upprunastaður
64°9'6.9"N 21°59'17.8"W
