Hljómplata

1975
Hljómplatan "Áfram stelpur" gefin út 1975 af Kjartani Eggertssyni og Hirti Blöndal (Aðall sf) í samvinnu við leikkonurnar og söngvarana sem syngja á plötunni. Hljómplatan er ónotuð og umslagið órofið/með innsigli. Platan var gefin út í tilefni kvennaárs Sameinuðu þjóðanna 1975. Teikning á framhlið eftir Sigrúnu Eldjárn. Ljósmynd á bakhlið af útifundi á kvennafrídegi 24. okt. 1975, ljósm. Ólafur K. Magnússon. Kjartan gaf plötuna á baráttudegi kvenna 19. júní 2005 en þá var sýning í tilefni dagsins.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1975
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2005-179-1
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Hljómplata