Hekluð sýnishorn

1974 - 1986
Sýnishorn kennara. Unnið meðan hún var í starfi við Valhúsaskóla árin 1974-1986. a)   Pottaleppur / hitaplatti. Efni: Bómull. Tækni: Hekl. Heklaður pottaleppur / hitaplatti úr efnisræmum. Hringlaga með litlum hanka.  b)   Gólfmotta. Efni: Bómull. Tækni: Hekl. Hringlaga hekluð gólfmotta. Stuðlar og loftlykkjur. Heklaðir litlir takkar í kantinn. Litir: Gulbrúnn og brúnn. Stærð: 60 sm í þvermál. Heklaðar gólfmottur var mjög vinsælt verkefni hjá nemendum. c)   Gólfmotta. Efni: Bómull. Tækni: Hekl. Hringlaga hekluð gólfmotta. Stuðlar og loftlykkjur. Heklaður blúndukantur í kringum mottuna. Efni: Grófur og þéttur bómullarþráður. Litur: Beinhvítt. Stærð: 55 sm í þvermál. Heklaðar gólfmottur voru mjög vinsæl verkefni hjá nemendum.. d)   Gólfmotta. Efni: Hampur. Tækni: Hekl. Hringlaga hekluð gólfmotta. Stuðlar og loftlykkjur. Efni: Hampur. Kanturinn er ófrágenginn. Hér hafa verið prófaðar þrjár ólíkar útfærslur í kantinum. Heklaðar gólfmottur var mjög vinsælt verkefni hjá nemendum. Garnið í motturnar var keypt í Vöruþjónustunni í húsi sem hét Ás og stóð við Laugarveg 160. Verslunin seldi einnig mikið af garni út á landsbyggðina. Það var sérlega mikið og gott úrval af garni í versluninni, t.d. lopi og aðrar vörur frá Gefjun á Akureyri. Garnið hentaði vel sem efniviður í allra handa skólavinnu. Það nýttist einstaklega vel í prjón, vefnað, útsaum og fl. Það sem var sérstakt við vöruúrvalið var að eigandinn Ólafur Jónsson setti saman ólíka þræði og spann þannig fjölbreytt og sérstakt garn. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Hekluð sýnishorn
Ártal
1974 - 1986
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-13
Staður
Staður: Valhúsaskóli, Skólabraut 9, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna