Karfa, sem skrautgripur

1960
Lítil hringlaga fléttuð karfa með viðarbotni. Rauð og viðarlituð. Valgerður gerði körfuna sjálf en hún og vinkonur hennar af Eyrinni (Oddeyri, Akureyri) fóru um einusinni til tvisvar í viku í föndurstundir sem voru í húsnæði Góðtemplarareglunnar á Hótel Varðborg í kringum 1960. Góðtemplararegla I.O.G.T. rak Hótel Varðborg, Geislagata 7, Akureyri. Gefandi man til þess að þær hafi gert tuskudýr úr filti með einhverju tróði inní, tágakörfur og lampaskerma úr vírgrindum og basti. Þarna var rekið Æskulýðsheimili templara. Þar voru haldin allskonar námskeið, klúbbar, spilað á töfl og spil, bobb og billjard. Einnig var aðgangur að bókasafni og lestrarhúsnæði. 

Aðrar upplýsingar

Ártal
1960
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-54
Stærð
17 x 17 x 5 cm Lengd: 17 Breidd: 17 Hæð: 5 cm
Staður
Staður: Hótel Varðborg, Geislagata 7, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Miðbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

65°41'2.5"N 18°5'30.0"W