Dúkkurúmföt

1950
Gefandi fékk rúmið frá ömmu sinni og afa, en hún er alnafna ömmu sinnar. Hún fékk rúmið í kringum tveggja ára aldurinn, upp úr 1950. Líklega hefur einhver á Akureyri smíðað rúmið. Amma hennar saumaði: dýnu, kodda, sæng, rúmteppi, koddaver og sængurver. Allt fylgir það rúminu. Hún hafði átt tuskudúkku með leirhaus sem alltaf var í dúkkurúminu en hausarnir brotnuðu alltaf jafn óðum og nýr var keyptur. Svo var notast við plastdúkkur. Rúmið var alltaf á heimili gefanda á Akureyri á meðan hún bjó þar, eða til ársins 2000. Barnabörnin tengja svo rúmið við Tolla dúkkustrák (MSA2020:48) sem alltaf sat á rúminu, en það var of stutt til að hann gæti legið þar út af.  Viðarlitað dúkkurúm  með rimlum, gaflar hærri en hliðar. Sæng og koddi úr samstæðu setti, lítil blúnda og blómamunstur. Gulbrún ábreiða og dýna.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-49
Stærð
48 x 24 x 32 cm Lengd: 48 Breidd: 24 Hæð: 32 cm
Staður
Staður: Eyrarvegur 6, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Oddeyri, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dúkkurúmföt
Efnisorð:
Dúkkurúm

Upprunastaður

65°41'14.4"N 18°5'34.9"W