Brennijárn, f. húsdýr

Lýsing: Hausinn ber fangamark Einars Einarssonar gullsmiðs auk tákns sem líkist tölustafnum 8 á hlið, með misstórum hringjum og legg neðan úr (myndin er spegluð). Saga: Járnið átti Einar Einarsson gullsmiður og bóndi á Bustarfelli. Einar var frá Syðri-Vík, Vopnafirði, sigldi til Kaupmannahafnar 22ja ára og nam þar gullsmíði í 2 ár. Kvæntist Salínu Methúsalemsdóttur Árnasonar, Bustarfelli, árið 1849 og bjuggu þau að Bustarfelli frá 1851. Hann var sagður léttleikamaður með afbrigðum og sérstakt snyrtimenni.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1976-103
Staður
Staður: Bustarfell I, Burstarfell, 691-Vopnafirði, Vopnafjarðarhreppur, Vopnafjörður, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

65°36'54.3"N 15°5'56.0"W