Ísbjörn

16.07.2020

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1965)
Ártal
Sent dags: 16.07.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-2-19
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei, því miður hef ég ekki persónulega orðið var við ísbjörn og bara heyrt þær sögur sem komu í fjölmiðlum f. nokkrum árum.

Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Nei.

Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Þvælast með ísjökum sem reka að landi. Ísjakar sem t.d. losna frá Grænlandsjöklum og í nágrenni þess. Í mínum huga finnst mér þetta alltaf tengjast köldum vindum frá Grænlandi og þar um slóðir og jafnvel líka það að þeir séu mögulega í fæðuleit.

Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Skjóta þá með deyfibyssu og flytja þá á heimaslóðir aftur.

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei.

En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Nei, veit ekkert um þetta.

Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Mjög spennandi þegar það fréttist af þeim. Tignarleg dýr sem mér finnast æðisleg.

Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Nei, ég þekki það sossum ekki. En heyrt af drápum með byssum. Síðan þessi fræga saga af ísbirninum á Dalvík, líklega eru þeir oftast urðaðir eða uppstoppaðir.

Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Já á Dalvík og síðan hef ég séð feldi á safni á Eyrarbakka eða Stokkseyri. Skotin, veit ekki hvar.

Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Nei.

Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei.

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Húnaflói, Húnavatnssýsla, Húnaþing, Ísbjarnarblús (lagið e. Bubba Mortens). Í Húnavatnssýslum eru til mikið af sögum um ísbirni og margt kennt við þá þar þó svo að ég þekki það ekki sjálf

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Nei, ekki kunnug um þetta.

Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Nei.

Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.

Nei.

Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ísbjörn
Efnisorð:
Ísbjarnarkoma
Efnisorð:
Ísbjarnarkoma