Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1949)
Ártal
Sent dags: 16.07.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-2-18
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Því miður get ég víst ekki komið að neinu haldi að þessu sinni. Hafís man ég að vísu eftir á Hrútafirði vorin 1965 og 1968, en honum fylgdu engin æsileg ísbjarnarævintýri. Ég man ekki einu sinni eftir að hafa heyrt neinar sögur af ísbjörnum, aðrar en fréttir í blöðum og svo náttúrulega í hinn æsispennandi bók Jóns Sveinssonar (Nonna) Á Skipalóni. Og reyndar má segja að það hafi jaðrað við vonbrigði, þegar ég varð tíður gestur á þeim bæ sem ungur maður, að sjá þar reisulegt íbúðarhús sem byggt var 1824 og kom fremur illa heim við torfbæinn í sögunni.
Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Einungis í fréttum.
Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Enga sérstaka merkingu.
Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Það fer svo sem eftir atvikum. Enn sem komið er, eru þeir ekki í slíkri útrýmingarhættu að ekki sé einfaldast að skjóta þá.
Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei.
En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Ekkert nema það sem ég hef lesið hér og þar.
Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Ekkert hér.
Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Nei, hér gildir sama og annarsstaðar. Allur minn fróðleikur kemur af prenti.
Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Skila líka auðu hér.
Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Sussu nei.
Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Bara í Ísbjarnarkvæði Böðvars Guðmundssonar, sem reyndar er feykilega skemmtilegt.
Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Mig minnir að Hvítabjarnarhóll sé til á hálsinum fyrir ofan Reyki í Hrútafirði.
Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Því miður, engar minningar sem tengjast þessu.
Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Í svipinn man ég bara eftir kvæði Böðvars, en það er lika feykigott. Það er í bókinni "Í mannabyggð" (minnir mig) frá 1966, held ég örugglega.
Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Nei.
Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei. Mér þykir alltaf vænt um það þegar ég get orðið ykkur að liði, en sem sagt ekki að þessu sinni. En mæli enn einu sinni með kvæði Böðvars. Hann er auðvitað einn okkar allra bestu húmorista og t.d. höfundur hinnar frægu vísu "Úti í snjónum flokkur frýs
fána sviptur rauðum.
Ólafur Ragnar Grímsson grís
gekk af honum dauðum."

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti