Ísbjarnarkoma

16.07.2020

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1949)
Ártal
Sent dags: 16.07.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-2-17
Staður
Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær
Spurningaskrá / Svör
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei, kann enga slíka sögu.

Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Bara í fjölmiðlum. Þegar ég var barn og unglingur skildist mér að Grímseyjarbjörninn frægi (sem var stoppaður upp og mikið rætt um hvar ætti að vera til sýnis) væri sá eini sem sést hefði á Íslandi nýlega. Svo bættust einhverjir við á hafísárunum kringum 1970. En um þá man ég ekkert nánar.

Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Þeir koma af tilviljun með hafís. En sú tilviljun er líklegri þegar mikið er um hafís, þ.e. á kuldaskeiðum.

Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Það þarf auðvitað að losna við þá. Helst lifandi ef það er framkvæmanlegt með góðu móti, en ég hef bara ekkert vit á hve raunhæft það er. Veit að það er gert í Kanada (við Hudsonflóa), þar sem mér skilst að birnir séu skotnir með svæfilyfi og fluttir hangandi neðan í þyrlu. En væntanlega um miklu styttri vegalengdir en hér væri um að tefla.

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei, man ekki til þess.

En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Þeir veiða auðvitað sér til matar. Og geta verið hættulegir fólki, samkvæmt fréttum, t.d. frá Svalbarða, um að fólk megi ekki vera óvopnað á slóðum ísbjarna.

Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Veit ekki.

Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Væntanlega er átt við atburði á Íslandi. Ég þekki þá bara úr fjölmiðlum. Og einhverri af Nonnabókunum.

Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Jú, Grímseyjarbjörninn var stoppaður upp. Hauskúpu úr ísbirni hef ég líka séð á safni. Og ísbjarnarfeld, líka á safni.

Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Nei, ekki nema að vera vopnaður.

Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei, það held ég ekki.

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Man ekki til þess.

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Mig rámar í einhverjar bjarnasögur úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar, en man þær ekki glöggt. Ég veit að það tíðkaðist á miðöldum að gefa kirkjum ísbjarnarfeldi (eins og máldagar eru til vitnis um) en veit ekki vel hvaða hlutverki þeir gegndu, t.d. hvort kropið var á þeim við skriftir eða langdregið bænahald.

Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Nei.

Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.

Nei, held ekki.

Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei, ekki ég sjálfur. En afi minn átti bókastoðir í mynd ísbjarna, úr brenndum leir.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ísbjarnarkoma
Efnisorð:
Ísbjarnarkoma
Efnisorð:
Ísbjörn