Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1952)
Ártal
Sent dags: 16.07.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-2-15
Staður
Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær
Spurningaskrá / Svör
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Ég er uppalinn í Aðaldal í S-Þingeyjarsýslu. Man eftir í fréttum 1968 +/- 2-3 ár að fólk á Máná á Tjörnesi taldi sig heyra til íslbjarna. Hafísár voru og þrálátar norðanáttir. Seinna kom nú í ljós að um hvali (höfrunga) var að ræða að sögn.
Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Aðeins nú á seinni árum er flækingsdýr hafa komið þá hef ég fylgst með fréttum af þeim í gegnum fjölmiðla.
Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Ég tel að ísbirnir komi hingað að einhverju leiti sem flækingsdýr, e.t.v. rekið með hafís sem berst hingað og/eða elt fiskitorfur (æti) Eitthvað spilar sjávarhiti og straumar þar inni. Veit ekki alveg hvað skal segja um merkingu ísbjarnarkomu.
Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Stafi mönnum og dýrum ekki hætta af þeim ber að flytja þá aftur til fyrri heimkynna ef það er mögulegt. Þetta er ugglaust matsatriði sem snúast um kostnað og þ.h.
Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Má vera, líka að þeir hafi elt manneskjur sbr. (að) Grímseyjarísbjörninn um árið rölti á eftir Guðlaugi Óla. Yfirleitt hef ég heyrt að fólk forði sér frá þeim. Þeistareykjaísbjörninn var svangur. Líklega fer nú atferli þeirra eitthvað eftir því hverig hungumörkum þeirra er háttað í hver og eitt skipti.
En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Hef nú ekki mikið heyrt að ísbirnir hafi drepið fólk, e.t.v. kom það þó fyrir í þjóðsögum hér áður.
Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Ekki get ég sagt það. Komur ísbjarna í dag eru aðalega hátíð fréttafólks sbr. ísbjarnarkomuna á Skaganum um árið, voru ekki því sem næst í beinni útsendingu.
Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Eitthvað hef ég nú heyrt um það, eru yflirleitt felldir með byssum. í þjóðsögum voru þeir felldir með eggvopnum. Feldur var nýttur til skæða, þ.e. búin til úr þeim hlífðarföt og þ.h. Man ekki efir öðrum dýrum en í þjóðsögum, lögðu þeir sér sauðfé til munns. Held að kjötið hafa verið eitthvað nýtt til matar.
Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Man eftir uppstoppuðum dýrum á ferðamannastöðum eins og t.d. Hótel Rangá, veit ekki hvaðan hann er. Grímseyjarbangsinn er á Safnahúsinu á Húsavík og eru ekki Skagabangsarnir á Blönduósi og Sauðárkrók. Þetta voru dýr sem féllu fyrir skotvopnum.
Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Engin nútímaráð, það eru svo litlar líkur á að þeir verði á vegi almennings. Fólk þarf að halda sig í hæfirlegri fjarlægð.
Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Þori ekki að segja um það, þó trúi ég að það sé eh. um slíkt í norrænum forn- og þjóðsögum.
Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Kann nú ekkert um bjarnarörnefni, bendi á t.d. Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi, Bjarnareyrar eru til líklega á Breiðafirði og fleira í þeim dúr.
Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Hef séð fullt af myndum í bókum og blöðum, á ekki listaverk af ísbirni.
Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei. ekkert.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti