Ísbjarnarkoma

16.07.2020

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1954)
Ártal
Sent dags: 16.07.2020
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2020-2-11
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei.

Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Já, í fréttum af Skaga, því dýri var lýst sem frekar horaðri birnu.

Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Þeir koma með hafís mest þegar hafís er nálægt landi.

Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Það verður að drepa þau strax er menni vita af bjarndýri.

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei.

En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Las sögu um það (að) bjarndýr dræpu húsdýr sér til matar. 

Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Engar sérstakar tilfinningar.

Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Bara það sem hefur verið í fréttum síðasliðin 50 ár.

Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Séð á söfnum uppstoppuð dýr.

Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Nei.

Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei.

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Hvítabjarnarey á Breiðafirði.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ísbjarnarkoma
Efnisorð:
Ísbjarnarkoma
Efnisorð:
Ísbjörn