Handavinnupoki með dúkkupúðum

1941 - 1942
Titill: Handavinnupoki með 5 litlum dúkkupúðum innan í. Efni: Bómull. Ull. Tækni: Handsaumur. Útsaumur. Vélsaumur Lítill handavinnupoki og fimm örsmáir púðar. Púðinn er nemendavinna úr Austurbæjarskóla 1941-1942 en pokinn er saumaður af Unni, systur Gerðar þegar hún var í 9 ára bekk 1941-1942. Litlu púðarnir eru saumaðir af Jónu Svanhvíti móður þeirra. a)    Handavinnupokinn er allur handsaumaður. Hann er úr einlitu og fíngerðu bómullarefni með útsaumaðri mynd og fangamarkinu UÓ að framan. Mynd: Stelpa með hund. Myndin er saumuð með leggsaumi (kontorstingur, varpleggur), einnig nokkur bein spor og stök krosssaumsspor. Fangamarkið er saumað með leggsaumi (kontorstingur, varpleggur) og krókspori (hexispori). Allur útsaumur er saumaður með árórugarni. Saumfarið er flatt út (straujað í sundur). Brotið er innaf brúnum og þær varpaðar niður og síðan eru brúnirnar varpaðar saman. Brotið er inn af pokanum að ofan og lagt niður við saumfarið. Saumaður er leggsaumur til skreytinga við handsauminn. Pokinn er dreginn saman að ofan með snúinni snúru. Stærð: 28.5 x 18.5 sm. Fimm örsmáir sófapúðar (dúkkupúðar), allir saumaðir með krosssaumi. Púðarnir voru hafðir í litlum dúkkuhúsgögnum. Þeir hafa verið varðveittir í handavinnupokanum (liður a) í áratugi. b)    Gulur púði með mynd af blárri uglu. Brúnt flauel á bakhlið, pífa í kring. c)    Ryðrauður púði. Munstur sem myndar X á ljósgráum grunni. Myndin er saumuð á miðjuna.   d)    Dökkfjólublár púði með fölgrænum fugli með útbreidda vængi. Dimmblátt flauel á bakhlið og hnútar bundnir á horn púðans. e)    Drapplitaður púði með fjólubláu blómi. Dimmblátt flauel á bakhlið. f)     Drapplitaður púði með tígulmunstri. Brúnt flauel á bakhlið. Handavinnukennarar í Austurbæjarskóla á þessum árum voru Elísabet Helgadóttir F.26.11.1898, D.01.11.1982 og Rannveig Jónasdóttir F.18.10.1903, D.02.01.1994. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Handavinnupoki með dúkkupúðum
Ártal
1941 - 1942
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-50-11
Staður
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna

Upprunastaður

64°8'32.0"N 21°55'25.7"W