Útsaumur

1952 - 1953
Nemendavinna úr Austurbæjarskóla 1952-1953. Útsaumuð mynd í litlum tréramma, krosssaumur. Saumað með ullargarni í stramma. Myndin er fest á bakhlið rammans með teiknibólum. Á bakhlið er teygja til að hengja myndina upp. Myndin er upplituð (sjá upprunalegu litina á bakhlið) því hún hékk lengi í dúkkuhúsi sem stóð á lóð fjölskyldunnar. Stærð á mynd með ramma 22 x 17 sm. Á þessum árum voru í gildi námskrárdrög frá 1948. Myndin var svokallað aukastykki, unnin í 9 ára bekk. Nemendur sem luku skyldustykkjum sínum samkvæmt námskrá gátu unnið aukaverkefni að vild. Yfirleitt höfðu nemendur frjálst val um verkefni sem hæfðu getu þeirra. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Útsaumur
Ártal
1952 - 1953
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-50-5
Staður
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna
Efnisorð:
Útsaumsmynd

Upprunastaður

64°8'32.0"N 21°55'25.7"W