Jóladúkur
1952 - 1953

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Nemendavinna úr Austurbæjarskóla 1952-1953.
Jóladúkur, stjörnulaga. Dúkurinn var keyptur með frágengnum földum. Rauður með hvítum útsaumi. Krosssaumsmunstur (englar og kertaljós). Andlit og geislar saumað með leggsaumi (kontorstingur, varpleggur). Athugið, að krosssaumslínurnar í kertunum eru saumaðar á ská sem hentar kertamunstrinu vel. Utan um dúkinn er tilbúinn skrautborði.
Á þessum árum voru í gildi námskrárdrög frá 1948.
Jóladúkurinn var svokallað aukastykki, unninní 9 ára bekk. Nemendur sem luku skyldustykkjum sínum samkvæmt námskrá gátu unnið aukaverkefni að vild. Yfirleitt höfðu nemendur frjálst val um verkefni sem hæfðu getu þeirra.
Handavinnukennarar í Austurbæjarskóla á þessum árum voru Elísabet Helgadóttir F.26.11.1898, D.01.11.1982 og Rannveig Jónasdóttir F.18.10.1903, D.02.01.1994.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Gerður G. Óskarsdóttir, Hlutinn gerði
Gefandi: Gerður G. Óskarsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Gerður G. Óskarsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Jóladúkur
Ártal
1952 - 1953
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-50-4
Staður
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'32.0"N 21°55'25.7"W
