Svunta nemendavinna

1952 - 1953
Nemendavinna úr Austurbæjarskóla 1952-1953. Mittissvunta (blárúðótt), saumuð í saumavél. Hún er rykkt undir streng og bundin saman að aftan. Gengið frá strengnum í höndum á röngu. Böndin eru einföld með tvíbrotnum faldi á hliðum. Þau eru saumuð við strenginn. Tveir vasar eru framan á svuntunni. Útsaumsbekkur er neðan á svuntu, á báðum vösum og á hliðarsaumum. Saumað er með árórugarni. Útsaumur á vösum: Krosssaumsmunstur á miðjum vasa og ídregið krókspor (hexistingur) saumað í vasafaldinn. Neðan á svuntu er breiður munsturbekkur. Útsaumsspor: Oddaspor, lykkjuspor og þrefalt ídregið þræðispor. Á hliðum svuntunnar er saumað ídregið krókspor (hexistingur). Svuntan hefur greinilega verið mikið notuð því annað svuntubandið er mjög slitið og er aðeins smá bútur (stubbur) eftir af því. Á þessum árum voru í gildi námskrárdrög frá 1948. Svuntan var svokallað aukastykki, unniní 9 ára bekk. Nemendur sem luku skyldustykkjum sínum samkvæmt námskrá gátu unnið aukaverkefni að vild. Yfirleitt höfðu nemendur frjálst val um verkefni sem hæfðu getu þeirra. Handavinnukennarar í Austurbæjarskóla á þessum árum voru Elísabet Helgadóttir F.26.11.1898, D.01.11.1982 og Rannveig Jónasdóttir F.18.10.1903, D.02.01.1994. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Svunta nemendavinna
Ártal
1952 - 1953
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-50-3
Staður
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna
Efnisorð:
Svunta

Upprunastaður

64°8'32.0"N 21°55'25.7"W