Herðatré prjón

1952 - 1953
Nemendavinna úr 9 ára bekk í Austurbæjarskóla 1952-1953. Prjónað utan um herðatré. Prjónað þvert á herðatréð. Litir: Aðal liturinn er ljósgrænblár. Nafnið Gerður og fangamarkið GÓ saumað með stórum þræðisporum. Blóm saumuð sitt hvoru megin með lykkjuspori. Að lokum er heklað utan um krókinn og síðan varpað yfir heklbrúnina. Skylduvinna í 9 ára bekk Austurbæjarskóla, veturinn 1952-1953 samkvæmt námskrárdrögum frá 1948. Handavinnukennarar í Austurbæjarskóla á þessum árum voru Elísabet Helgadóttir F. 26.11. 1898, D.1.11.1982 og Rannveig Jónasdóttir F.18.10.1903, D.02.01.1994. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Herðatré prjón
Ártal
1952 - 1953
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-50-2
Staður
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Herðatré
Efnisorð:
Skólahandavinna

Upprunastaður

64°8'32.0"N 21°55'25.7"W