handavinnupoki
1952 - 1953

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Nemendavinna úr 9 ára bekk í Austurbæjarskóla 1952-1953.
Handavinnupoki úr blárúðóttu efni. Pokinn er allur handsaumaður. Á annarri hlið pokans er fangamarkið GGÓ ásamt blómamunstri. Neðarlega og þvert á pokann er saumaður munsturbekkur. Allt saumað með krosssaumi. Á hinni hlið pokans er frekar breiður munsturbekkur. Útsaumsspor: Oddapor, lykkjuspor og ídregið fjórfalt þræðispor. Meðfram hliðum pokans báðum megin er saumað ídregið krókspor (hexistingur). Faldurinn að ofan er brotinn niður og sama sporið (hexistingur) saumað í gegnum bæði efnislögin til að mynda rennu (göng, rás) fyrir snúru. Pokinn er dreginn saman að ofan með heklaðri snúru. Stærð: 29 x 25 sm. Skylduvinna í 9 ára bekk Austurbæjarskóla, veturinn 1952-1953 samkvæmt námskrárdrögum frá 1948.
Handavinnukennarar í Austurbæjarskóla á þessum árum voru Elísabet Helgadóttir F. 26.11. 1898, D.1.11.1982 og Rannveig Jónasdóttir F.18.10.1903, D.02.01.1994.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Gerður G. Óskarsdóttir, Hlutinn gerði
Gefandi: Gerður G. Óskarsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Gerður G. Óskarsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: handavinnupoki
Ártal
1952 - 1953
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-50-1
Staður
Staður: Austurbæjarskóli, Barónsstígur 32, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skólavörðuholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'32.0"N 21°55'25.7"W
