Stimpill, +. hlutv.
1973 - 1987

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Tréstimpill, áletrun: Húseiningar hf. 4451-6225 Siglufirði. Stimpillinn var framleiddur af Gúmmístimplagerðinni.
Fyrirtækið Húseiningar hf. var stofnað á Siglufirði árið 1973, þegar mikil lægð var í atvinnulífi Siglfirðinga, og framleiddi timburhús úr tilbúnum einingum. Starfsemin fór fram í húsnæði Tunnuverksmiðja ríkisins, en tunnuframleiðslu hafði þá verið hætt. Tilgangurinn var að reyna að lækka byggingakostnað íbúðarhúsnæðis með því að stytta byggingatímann. Framleiðsla á húseiningum hófst fyrir alvöru vorið 1975 og gekk reksturinn afar vel. Árið 1982 störfuðu 35 manns hjá fyrirtækinu og framleidd höfðu verið á þriðja hundrað hús. Húseiningar hf. var úrskurðað gjaldþrota 1987.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Valgeir Sigurðsson
Ártal
1973 - 1987
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ
Safnnúmer B: 2020-8-3
Stærð
7 x 4 x 2 cm
Lengd: 7 Breidd: 4 Hæð: 2 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stimpill, +. hlutv.
