Stimpill, +. hlutv.
1946 - 1971

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Tréstimpill, áletrun: Tunnuverksmiðjur ríkisins.
Tunnuverksmiðja ríkisins á Siglufirði var reist árið 1946 og stóð sunnan við Mjölhús SR. Tunnuverksmiðjan brann árið 1964. Það var gífurlegt tjón af brunanum og í fréttum sagði: „Húsið sjálft var hið mesta stórhýsi, 2000 fermetrar að stærð með tveimur vinnuhæðum, auk mikils rispláss. Það var járnklætt stálgrindahús, en nú er þar rúst eins og járnhrúga. Hvergi sér heillega tægju eftir af einu eða neinu, hinir þykkustu járnbitar bráðnaðir og orðnir að engu og vélarnar orðnar að rusli.“ Verksmiðjan var endubyggð ári síðar og starfrækt fram til ársins 1971.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Valgeir Sigurðsson
Ártal
1946 - 1971
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ
Safnnúmer B: 2020-8-2
Stærð
8.7 x 5.2 x 2.5 cm
Lengd: 8.7 Breidd: 5.2 Hæð: 2.5 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stimpill, +. hlutv.
Heimildir
„Tunnuverksmiðjan á Siglfirði brann til kaldra kola í nótt“ Vísir, 9. janúar 1964.
Síldarminjasafn Íslands, Siglufjörður. Ljósmyndir 1872-2018, bls. 212.
