Bæjarskilti

1884
Trérammi / skilti með útskornum stöfum þar sem stendur: AUSTARALAND  Páll Jóhannesson 1884. Hlutinn gerði Guðmund Pálsson bíldhöggvarI. Afhent af Halldóru Egilsdóttur. Stærð 81 x 46 cm.

Aðrar upplýsingar

Guðmundur Pálsson, Hlutinn gerði
Páll Jóhannesson, Notandi
Ártal
1884
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1959-101-1
Stærð
81 x 46 cm Lengd: 81 Breidd: 46 cm
Staður
Staður: Austaraland, 671-Kópaskeri, Norðurþing
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Byggðasafn N-Þingeyinga
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bæjarskilti
Heimildir
Guðmundur var sonur Páls Grímólfssonar bónda og konu hans Þuríðar Guðmundsdóttur. Þau bjuggu í Fornaseli á Mýrum og þar fæddist Guðmundur. Hann var kallaður bíldur eða bíldhöggvari. Hann stundaði nám í tréskurði í Kaupmannahöfn. Hann skar út upphleypta kirkjugripi, trúarlegar myndir og altaristöflur en vann einnig fyrir sér með því að skera út nytjahluti eins og t.d. vindhana til nota heima á bæjum. Tvö verka hans eru sérstaklega þekkt: Yfirstykki utan um enska altaristöflu úr alabastri frá 15.öld í Þingeyrarkirkju og sporöskjulöguð eikarþynna með mannamyndum, líklega úr sömu kirkju. Guðmundur var hvergi heimilisfastur og dvaldi hvergi langdvölum. Hann átti lítinn bát sem hann ferðaðist um á á sumrin. Hann lést á Ystahóli í Sléttuhlíð 54 ára gamall. (Heimild EMM og Blanda grein eftir Jón Jóhannsson skrifuð árið 1932.)

Upprunastaður

66°0'19.7"N 16°25'23.4"W