Rjómasprauta

1930 - 1940
Rjóma- og deigsprauta. 16,5 cm langur sívalningur úr blikki 5,8 - 6,2 cm í þvermál. Inn í hann gengur 21 cm langur og 5,4 cm langur tréhnallur eða kefli með hnúð á endanum, sem handfang. Sprautunni fylgja mörg mót í litlu blikkformi, hringlaga 6,4 cm í þvermál. 1,5 cm á hæð og með 1,3 cm barmi - gat í miðju. Í forminu eru tvær rjómaspraututúður, þvermál 5,7 cm báðar og önnur 5,7 cm löng, og hin 5,3 cm löng. Sú styttri virðist hafa verið grófari en hún er brotin í túðuenda og flipar beyglaðir saman. Níu kökumót fylgja (teikningar í skráningabók): Fjórar stjörnur fyrir t.d. vanillu- og kókos hringi, eitt kringlótt fyrir lengjur, tvær flatar með bárum fyrir t.d. skeifur, tveir hálfmánar - eða augnlaga fyrir ýmsar kökur.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1930 - 1940
Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk-4172 Safnnúmer B: 2005-120
Stærð
16.5 x 6.2 cm Lengd: 16.5 Breidd: 6.2 cm
Staður
Staður: Sævarstígur 2, Skagafjörður, Sauðárkrókur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Rjómasprauta

Upprunastaður

65°45'0.7"N 19°38'59.1"W