Karfa, skráð e. hlutv.

1905
Karfa/barnavagga úr basti á stól. Karfan sjálf er sporöskjulaga 55 x 81 cm að stærð og minnsta 36-40 cm. Hægt er að draga upp skyggni yfir barnið. Hæð frá botni vöggunnar á skyggnið er 63 cm. Stóllinn er einföld smíð - samanbundnar álmur, sveigðar og mynda 75,5 x 48,4 cm vítt sæti fyrir vögguna. Hæð frá gólfi á vöggu alls 63 cm. Vaggan fellur ofan í sætishringinn. Vöggunni fylgdu tvær dýnur, önnur úr plasti klædd gulu lérefti hin sennilega úr flóka, klædd bláu lérefti. Vöggunni fylgdi einnig gult bómullarsett sem hún er klædd í með hvítri blúndubrún. Gula hlífðarsettið sem fylgdi körfunni er síðasta settið sem notað var á hana. Sennilega frá 1970, en er haft með til að hlífa henni í geymslu safnsins og ekki skráð sérstaklega.  Karfa þessi var keypt handa Ole Bang 1905, en móðir hans fékk körfuna í Kaupmannahöfn. Öll systkini Lisu Bang, börn og barnabörn Ola Bang hafa notað þessa körfu fyrstu mánuði lífs síns.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1905
Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk-4113 Safnnúmer B: 2005-61
Stærð
55 x 81 cm Lengd: 55 Breidd: 81 cm
Staður
Staður: Sævarstígur 2, Skagafjörður, Sauðárkrókur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Karfa, skráð e. hlutv.
Efnisorð:
Rúm
Efnisorð:
Vagga

Upprunastaður

65°45'0.7"N 19°38'59.1"W