Barmmerki, + hlutv.

1988 - 1996
Sex barmmerki, öll merkt VISA: Gyllt barmmerki í laginu eins og Ísland. Vestfirðir og norðurland eru lituð dökk blá. Hálendið er gyllt og höfuðborgarsvæðið og Suðurland eru svo gul á lit. Fyrir miðju stendur „VISA“ með bláum stöfum. Fest með tveim festingum. Þvermál 2,9 cm. Þunnt álmerki (ca. 0,5mm) sem er klemmt utan á fatnað. Með vörumerki VISA og fyrir neðan stendur „ELECTRON“. Lengd 2,9 cm. Gyllt barmmerki, heilmunstrað á baklið og með einni festingu. Að framanverðu er hvítur bakgrunnur með gylltum kanti. Merki vetrarólympíuleikanna sem haldnir voru í Lillehammer 1994. Ólympíumerkið sjálft (hringirnir) er gyllt. Undir því stendur „Lillehammer ´94“. Neðst stendur svo „VISA“, með með bláum stöfum með gylltum kanti. Stærð merkis er: 2,6x1,8x0,2 cm. Gyllt barmmerki með punktamunstri á bakhlið og einni festingu. Á framhlið er merki sumarólympíuleikanna í Seoul í Suður Kóreu árið 1988. Grænn bakgrunnur með gylltum kanti. Merki leikanna er í gylltu sem og ólympíuhringirnir þar fyrir neðan. Neðst er merki „VISA“, einnig gyllt. Aftan á merkinu er kross og hjá honum stendur „EDEN KOREA“. Stærð merkis er: 2,1x1,3x0,2 cm. Barmmerki frá sumarólympíuleikunum í Atlanta 1996, sem voru 100 ára afmælisleikar. Neðst á merkinu stendur „VISA“, feitletrað í dökkbláum lit með gylltum köntum. Þar fyrir ofan stendur, með gylltum stöfum, „Atlanta 1996“. Enn ofar er mynd af ólympíukyndlinum. Loginn er rauður og hvítur og upp úr honum koma fjórar stjörnur, bleik, blá, fjólublá og gul. Kyndilhandfangið er samsett af ólympíumerkinu og „100“ sem mætti líkja við útlit grískra musterissúlna. Á bakhlið er hrjúft heilmunstur og stendur „41 1585“ „TM,© 1992 ACOG“ „IMPRINTED PRODUCTS“. Stærð merkis er: 2,7x1,7x0,2 cm. Gyllt barmmerki með hvítum bakgrunni og gylltum köntum. Efst stendur „VISA“, feitletrað í dökkbláum lit með gylltum brúnum. Undir merkinu eru ólympíuhringirnir, gylltir. Ein festing með klemmufestingu að aftan. Aftan á stendur að því er virðist „USOC 36“ „USC 980“ „©Ho Ho Int´l TAIWAN“. Stærð merkis er: 1,4x1,7x0,2 cm. Gefandi vann hjá Visa í mörg ár og fengu starfsmenn þessi merki að gjöf í tilefni ólympíuleikanna.  Allir munirnir númer Þjms. 2018-61 koma frá sama gefanda og eru úr fórum hennar sjálfrar, foreldra hennar, móðursystur og fleiri.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1988 - 1996
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2018-61-7
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti