Skírnarkjóll

1949
Heklaður skírnarkjóll. Kjóllinn hefur upphaflega verið ljósblár en hefur upplitast með tímanum og er orðinn sægrænn/mintugrænn. Pífur bæði á pilsinu og við axlir. Á öxlunum eru fjórar pífur en pilsið er samansett úr 10 pífum. Heklmunstrið er nokkuð sérstakt. Kjóllinn er stuttur, honum hefur verið hneppt að aftan en tölurnar eru ekki lengur áfastar kjólnum. Heklmunstrið er nokkuð sérstakt.  Skírnarkjóllinn var heklaður fyrir skírn gefanda, 26. nóvember 1949, af móðursystur gefanda, Björgu Gísladóttur (f. 1892, d. 1970), sem var mikil hannyrðakona. Hún starfaði sem hattargerðarkona og lærði í Noregi. Allir munirnir númer Þjms. 2018-61 koma frá sama gefanda og eru úr fórum hennar sjálfrar, foreldra hennar, móðursystur og fleiri.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1949
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2018-61-4
Stærð
30 x 0 cm Lengd: 30 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skírnarkjóll