Broddstafur
1850 - 1900

Varðveitt hjá
Byggðasafn Skagfirðinga
Broddstafur frá Bakka. Broddstafurinn er alls 186,5 cm langur og 3,5 cm breiður, járnhólkurinn er 13 cm langur og broddurinn sjálfur 7,5 cm langur. Skaftið er úr viði, ekki alveg ávalt, heldur eins og átthyrnt.
Gefandi er Árni Sigurðsson (13.11.1927). Árni var sendur í fóstur til hjónanna Jóns Björnssonar (f. 1873 -d. 20.5.1959) og Guðrúnar Guðmundsdóttur (d. 2.1.1959) á Bakka í Viðvíkursveit í 4 ár þegar hann var unglingur. Þegar gömlu hjónin fluttu frá Bakka fékk Árni ýmsa hluti að gjöf.
Broddstafnum fylgdi sú saga að hann hafi smíðað Myllu-Kobbi.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1850 - 1900
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk -5343
Safnnúmer B: 2019-22
Stærð
186.5 x 3.5 cm
Lengd: 186.5 Breidd: 3.5 cm
Staður
Staður: Bakki, Skagafjörður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Broddstafur
Upprunastaður
65°45'54.1"N 19°23'30.5"W
