Mynd: Byggðasafn Skagfirðinga
Mynd: Byggðasafn Skagfirðinga

Kornkvörn

1850 - 1900
Kornkvörn (handkvörn) úr holóttu, íslensku hraungrýti. Yfirsteinninn er um 47,5 cm í þvermál og 6-7 cm þykkur. Gatið á miðjunni er um 8 cm í þvermál og í því neðst þverjárn er hvílir á járntyppi í miðju undirsteinsins. Undirsteinninn er um 60 cm í þvermál, með börmum, og fellur yfirsteinninn ofan á milli þeirra. Þykkt undirsteinsins á barma er 17-18 cm. Hann er eilítið kúptur og hinn efri íhvolfur að neðan, og gat er úti við barm undirsteinsins fyrir mélið að renna niður um. Rendur eru klappaðar í yfirsteininn að neðanverðu, frá gati og út á brún. Járnstandur er við brún yfirsteinsins, festur með blýi, og er á honum bútur af stórgripslegg (leggurinn er brotinn af og farinn 2009). Hefur standurinn verið færður, og er á einum staðnum, er hann hefur verið, brotið úr steininum. Stokkurinn, sem steinarnir nú eru í er nýsmíðaður (af Hirti Kr. Benediktssyni) en með sama lagi og slíkir stokkar voru. Hann er um 88 x 88 cm að ummáli og 15 cm djúpur og gat að framan með renniloki fyrir. Hann stendur á fjórum fótum og má hækka og lækka yfirsteininn með vogstangarútbúnaði. Steinarnir eru sagðir höggnir af Jakobi Jónssyni (Myllu-Kobba) og eru komnir til safnsins frá Litladal, í Lýtingsstaðahrepp, úr db. Jónasar Jónassonar bónda þar.

Aðrar upplýsingar

Jakob Jónsson, Hlutinn gerði
Ártal
1850 - 1900
Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk-291
Stærð
47.5 x 7 cm Lengd: 47.5 Breidd: 7 cm
Staður
Staður: Litli-Dalur, Skagafjörður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kornkvörn
Efnisorð:
Kvörn
Efnisorð:
Malkvörn

Upprunastaður

65°26'20.1"N 19°14'59.0"W