Rúmfjöl

Varðveitt hjá
Byggðasafn Skagfirðinga
Rúmfjöl úr furu, 19,3 x 144,7 cm. Slétt og heil. Að framan er á hana skorið með stóru og skýru latínuletri: EG FELI SERHVERT SEN SÁL OG LIKAMA MEN / I VALD OG VINSKAP ÞIN VERND OG SKIÓLÞAREG / FIN, og neðst SÁS 1869 HJD.
Málað hefur verið með rauðu ofan í stafina, en að öðru leyti er fjölin ómáluð. Aftan á hana eru dregnir þrír tvöfaldir hringir með hringfara.
Fjölin er gerð af Jakobi Jónssyni, betur þekktur sem Myllu-Kobbi (f. 1823 d. 189?), og áttu hana Stefán Ásgrímsson (d. 1930) og kona hans Helga Jónsdóttir (d. 1923) er lengi bjuggu að Efra-Ási í Hjaltadal. Gefin safninu af tengdadóttur þeirra Soffíu Jónsdóttur, Sauðárkróki 1956.
Aðrar upplýsingar
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk-473
Stærð
19.3 x 144.7 cm
Lengd: 19.3 Breidd: 144.7 cm
Staður
Staður: Efri-Ás 1, Skagafjörður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Upprunastaður
65°45'38.2"N 19°12'46.1"W
