Stafaklútur

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Lítil og snjáð prufa, stafaklútur. Ekki vitað um uppruna. Ljóst efni / einskeftuvefnaður. Stafrófið er saumað með krosssaumi í nokkrum litum. Í neðra hornið vinstra megin er saumuð mynd af höll, einnig með krosssaumi. Utan um prufuna er saumaður örmjór munsturkantur með krosssaumi. Ekki er vitað hvaðan prufan kemur, en hún er greinilega mjög gömul. Efnið er snjáð af notkun og farið að rakna upp úr köntum. Stærð 21.5 x 14.5 sm. Prufan var keypt í Kolaportinu eða á flóamarkaði.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Hallfríður Tryggvadóttir
Titill
Sérheiti: Stafaklútur
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-35-28
Stærð
0 x 14.5 x 21.5 cm
Breidd: 14.5 Hæð: 21.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
