Prufumappa (12 ára mappan

1958 - 1962
Prufumappa (12 ára mappan). Merkt: Kristín Þórðardóttir 1.bekkur A. 1961-1962. Handavinna. Fyrri hluti möppunnar er unninn í 12 ára bekk 1960-1961 en seinni hlutinn í fyrsta bekk gagnfræðastigs 1961-1962. Mappan er úr pappír með pappaspjöldum innan í. Samkvæmt námskrá frá 1960. Innihald samkvæmt röðun í möppu Vinnubók í handavinnu. Stafir teiknaðir eins og krosssaumsmunstur. K.Þ  12-B  1960. Útsaumur og viðgerðir. Prjónastopp og einskeftustopp. Útsaumaðir krossaumsstafir. Handskrifuð uppskrift af prjónaprufu nr.1. Teiknaðar prjónaleiðbeiningar af prjónaprufu nr.1. Prjónaprufa nr.1. Hér á eftir koma prufur sem voru unnar í gagnfræðadeild skólans 1961-1962 Prjónauppskrift af frönskum hæl. Prjónauppskrift af hælúrtöku og lykkjuupptöku á hæl. Prjónauppskrift af úrtöku aukalykkna og stjörnuúrtöku. Prjónaður barnasokkur með frönskum hæl og stjörnuúrtöku. Handgerð hnappagöt, eitt lárétt og annað lóðrétt. Tvær heklaðar blúnduprufur. Uppskrift af prjónuðum ungbarnavettlingi. Prjónaður ungbarnavettlingur. Stafaprufa. Útsaumaðir stafir. Útsaumsgerðir: GM saumað með flatsaumi. 1962 ídreginn aftursingur. R, leggsaumur (kontorstingur / varpleggur) og fræhnútar. V, tunguspor saumað hvort á móti öðru. K, ídreginn afturstingur fram og til baka. KÞ, franskur saumur (fylltur flatsaumur). Gengið er frá prufunni með gatafaldi á tveimur hliðum. Bótaprufa, (bláköflótt efni), brydduð með skábandi að ofan en faldað með skábandi að neðan. Blaðsíðufjöldi: Alls 15 síður. Handavinnukennari Kristínar í Miðbæjarskólanum var Guðrún Sigurðardóttir, F.15.7.1905. D.15.7.1995. Við bendum á fróðlega grein sem Guðrún skrifaði í tímarit Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Hugur og hönd árið 1983. Þar skrifar hún um handavinnukennslu í Barnaskóla Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, en hún kenndi við skólann frá 1930-1969. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Prufumappa (12 ára mappan
Ártal
1958 - 1962
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-30-2
Stærð
0 x 22 x 21 cm Breidd: 22 Hæð: 21 cm
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna

Upprunastaður

64°8'42.0"N 21°56'20.8"W