Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1959)
Ártal
Sent dags: 22.03.2019
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-124
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
(..1..) AAG 7. nóvember 1893 – 12. maí 1980 Föðuramma mín fæddist á Hjalteyri við Eyjafjörð, ein fimm systkina. Fjölskyldan var kaþólsk, sú fyrsta á Íslandi eftir siðaskipti. Þegar Landakotsskóli var stofnaður 1897 flutti fjölskyldan að Kirkjustræti 4 í Reykjavík. Jóhanna Friðriksdóttir móðir ömmu var þá orðin mikið veik og dó hún árið 1903. Stuttu eftir það sendi faðir þeirra börnin á skóla í Kaupmannahöfn og stundar amma þar nám til 1909. Eins og venja var á þessum tíma fór amma að vinna í Edinborgarversluninni, en hún fór einnig að stunda fimleika og sund í Ungkvennafélaginu Iðunni sem þá var nýstofnuð. Árið 1914 fer hún ásamt Hansínu systur sinni og vinkonu þeirra Rósu Þórarinsdóttur í Evrópuferð. Þær ferðast vítt og breytt um Evrópu. Rósa fer svo á skóla í París, Hansína fær vinnu á skrifstofu skipafélags í Leith. Amma kemst í vinnu sem eldhússtúlka „skullery maid“ á Hampstead House rétt utan við London. Það hús er nú hótel. Svo skall stríðið á og systrunum var smyglað í íslenskan togara og þannig komust þær heim. Amma vann síðan í Edinborgarversluninni í Reykjavík þar til hún giftist Þórhalli Árnasyni sellóleikara. Þau eignuðust einn son Hörð Þórhallsson föður minn. Hjónabandið stóð stutt. Afi fór að halda framhjá og amma yfirgaf hann. Þar sem amma var einlægur kaþólikki giftist hún ekki aftur. Mæðginin fluttust inn hjá langafa Gunnari Einarssyni. Hún átti prjónavél og jók tekjurnar með sölu á barnafatnaði. Einnig vann hún í Edinborgarversluninni. Faðir minn kvæntist Guðrúnu Ólöfu Þór og hjónin fluttu á Öldugötu 52 í Reykjavík hjá ömmu og langafa. Hún var okkur sytkinunum yndisleg amma, kenndi okkur börnunum bænirnar og að lesa. Hún var hámenntuð og var margt til lista lagt. Á skólanum í Danmörku lærði hún frönsku auk dönskunnar. Ensku lærði hún sem og þýsku. Hún kynntist kenningum Kneipp og Rudolfs Steiners og gerðist góð í jurta- og vatnslækningum. Hún kenndi okkur á jurtir og söfnuðum við oft fyrir lækningar hennar, sérstaklega klóelftingu sem amma hafði mikla trú á. Eftir andlát pabba 1959 og mamma fór að vinna úti sá amma um heimilið. Hún bakaði kökur og seldi til kaupmannsins á horninu. Síðar vann hún á Kópavogshælinu þar til hún hætti vegna aldurs. Ekki settist hún í helgan stein, heldur lagðist í ferðalög, bæði innanlands sem utan. Aldrei kenndi hún sér meins fyrr en síðasta árið að hún fékk krabbamein og lést stuttu seinna.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti