Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1944)
Ártal
Sent dags: 29.01.2019
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-99
Staður
Staður: Stóra-Fjarðarhorn, 510-Hólmavík, Strandabyggð
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Tölvupóstsamskipti við heimildarmann 4. apríl til 7. apríl 2015
Heimildarmaður: "Ég hafði svo lítið af ömmum mínum að segja að ég held að ég verði að segja pass í þetta sinn."
ÞÞ: "Smá forvitni, þekktir þú ömmur þína ekki af afspurn? Áttu engar minningar um frásagnir annarra um ömmur þínar?"
Heimildarmaður: "Jú það gerði ég vissulega og hitti þær af og til en um umgengni við var ekki að ræða. Í minningunni eru þær ákaflega góðar konur og glaðlyndar sérstaklega móðuramma mín Þorsteinsína Brynjólfsdóttir á Víðidalsá í Steingrímsfirði. Þorsteinsína amma var höfðingi og umgekkst alla af sömu ljúfmennskunni hvort sem um var að ræða sýslumanninn eða lækninn eða þá fátælt fólk sem átti hvergi höfði sínu að halla. Ég hef aldrei heyrt nokkurn mann hnýta í Þorsteinsínu ömmu þvert á móti væri nafn hennar nefnt var henni hrósað eða sgat frá einhverju sem hún hafð vel gert.
Amma Kristín Kristjánsdóttir í Stórafjarðarhorni, bjó við þyngra heimilislíf. Efni voru ágæt en ákaflega mikil vinnusemi hjá manni hennar, vinnan gekk fyrir öllu. Hún er orðin fullorðin þegar ég kynntist henni. Sýslumaður gifti þau heima í Stórafjarðarhornu um mitt sumar, afi stóð með hendina á hurðarhúninum og amma stóð á miðju gólfi meðan sýslumaður las rítualið og um leið og hann lauk lestrinum opnaði afi dyrnar og fór út í heyskapinn, eftir stóðu amma, sýslumaður og bróðir afa af næsta bæ sem var vottur að athöfninni. Ég segi frá þessu í bók minni fyrir Miðjum firði sem kom út hjá Vestfirska forlaginu 2010."

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
65°33'13.2"N 21°28'1.2"W