Ofin mynd á spjald (fugl). Námskeiðsgögn

1971
Ofin mynd á spjald (fugl). Einskeftuvefnaður. Fuglinn er ofinn / saumaður í uppistöðuþræðina. Sjá mynd af fugli í myndamöppu 2017-11-21. Myndlista- og handíðanámskeið 16.8.-3.9. 1971. Námskeið fyrir starfandi kennara. Námskeiðið var haldið í Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraskóla Íslands á vegum Fræðslumálastjórnar. Stjórnandi námskeiðsins (umsjónarmaður), Þórir Sigurðsson, þáverandi námsstjóri list- og verkgreina. Viðfangsefni námskeiðsins voru skapandi verkefni fyrir yngri og eldri nemendur. Sjá skýrslu um námskeiðið í lið k). Myndlista- og handíðanámskeið 16.8.-3.9. 1971. Námskeið fyrir starfandi kennara. Föndur. Kennari: Vigdís Pálsdóttir. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Ofin mynd á spjald (fugl). Námskeiðsgögn
Ártal
1971
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-11-24
Stærð
0 x 22 x 15 cm Breidd: 22 Hæð: 15 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna
Efnisorð:
Textíll