Vinnugalli
1950 - 1970

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Vinnugalli, blágrár að lit. Gallinn er renndur, með tveimur vösum, tveimur rassvösum og tveimur brjóstvösum og er annar þeirra hnepptur. Úr eigu Þórðar Þórðarsonar vélstjóra og framkvæmdastjóra frá Siglunesi (1921-1992). Þórður tók söltunarstöðina og hraðfrystihúsið Hrímni hf. á Siglufirði á leigu árið 1956 ásamt Jóni Sigurðssyni verkstjóra en þeir störfuðu þá báðir hjá fyrirtækinu. Tveimur árum síðar keyptu þeir fyrirtækið og ráku það til ársins 1968. Eftir að síldin hvarf vann Þórður við útgerð og síðar við framleiðslu á handlaugum og borðplötum.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1950 - 1970
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 30803
Stærð
156 x 158.5 cm
Lengd: 156 Breidd: 158.5 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vinnugalli
Heimildir
Benedikt Sigurðsson. Síldarsöltunarstöðvar á Siglufirði. Handrit.
